Vert markaðsstofa hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna kæru Ölgerðarinnar á hendur tveimur karlmönnum vegna meintra fjársvika . Annar þeirra var starfsmaður Ölgerðarinnar en hinn starfsmaður auglýsingastofunnar.

Í yfirlýsingunni segir að um hafi verið að ræða reikninga sem mynduðu inneign af hálfu Ölgerðarinnar í þjónustu hjá Vert. Viðkomandi vörumerkjastjóri hafi ætlað að nota þessa reikninga til að innheimta markaðsstuðning frá erlendum birgjum. Aldrei hafi verið ásetningur af hálfu markaðsstofunnar að valda Ölgerðinni tjóni og málið skrifist á gáleysi í samskiptum hennar við starfsmann Ölgerðarinnar.

Yfirlýsingin í heild:

„Einum af vörumerkjastjórum Ölgerðarinnar var í dag vikið frá störfum út af reikningum sem hann óskaði eftir og komu frá Vert. Við erum gersamlega miður okkar vegna þessa máls. Um er ræða reikninga sem mynduðu inneign af hálfu Ölgerðarinnar í þjónustu hjá Vert en fyrirtækið hefur um árabil verið okkar stærsti viðskiptavinur.

Viðkomandi vörumerkjastjóri hugðist nota þessa reikninga til að innheimta markaðsstuðning frá erlendum birgjum. Aldrei var ásetningur af okkar hálfu að valda Ölgerðinni fjártjóni. Samanlögð upphæðin sem um ræðir var brot af heildarviðskiptum okkar við Ölgerðina. Verklag við meðhöndlun þessara reikninga var ámælisvert.

Við höfum beðið Ölgerðina velvirðingar vegna þessa. Við höfum jafnframt opnað bókhald okkar upp á gátt til að hægt sé að upplýsa málið. Sú skoðun mun staðfesta að aldrei var um neinn ásetning að ræða að taka þátt í ólögmætu athæfi viðkomandi starfsmanns. Þetta leiðinlega mál skrifast á gáleysi í samskiptum okkar við hann. Við vonumst til að rannsóknin sem farin er af stað gangi greiðlega svo komast megi sem fyrst til botns í þessu máli.

Fyrir hönd Vert markaðsstofu,

Hörður Harðarson, eigandi

Stefán Gunnarsson, eigandi og framkvæmdastjóri.“