Aldrei hefur verið eins ódýrt fyrir Íslendinga að kaupa flugmiða og um þessar mundir. Íslendingur á leið erlendis getur nú gert ráð fyrir að borga um 36.668 krónur að meðaltali fyrir flugmiða báðar leiðir.

Á sama tíma í fyrra kostaði flugmiði báðar leiðir að meðaltali um 55.000 krónur og í byrjun árs 2015 var meðalverð á flugi frá Keflavík 60.326 krónur. Flugverð hefur því lækkað um 33% milli ára og um 40% á tveimur árum.

Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun Dohop á flugi frá Keflavík næstu vikurnar. Flugverð hefur aldrei verið lægra frá því að Dohop hóf að gera verðkannanir árið 2012.

Verð á flugi til nærri allra þeirra borga sem flogið er til með reglulegum hætti frá Keflavíkurflugvelli lækkar milli mánaða. Mestu ráða miklar lækkanir á meðalverði á flugi til New York, Boston og Barselóna í almennri verðlækkun.

T.a.m. lækkar meðalverð á flugi til New York um nærri 20.000 krónur og um 10.000 krónur til Barselóna. Verð til allra þeirra borga sem könnunin nær til lækkar, að Manchester undanskilinni, en meðalverð á flugi þangað hækkar um 4%.

„Haldist sama þróun og verið hefur síðustu tvö ár má þannig gera ráð fyrir að Íslendingum bjóðist enn lægri verð þegar líða tekur á vorið,“ segir í verðkönnuninni.