„Við höfum ekki séð jafn mikil viðbrögð síðan ég kom á vaktina,“ segir Friðrik Friðriksson, forstjóri Skjásins, en áskrifendur Skjáseins hafa aldrei verið fleiri frá því að Skjáreinn varð áskriftarsjónvarp í lok árs 2009.

Áskrifendur Skjáseins eru nú í fyrsta sinn komnir yfir 23 þúsund talsins.

Á síðustu vikum hafa næstum fjögur þúsund áskrifendur bæst við sem Friðrik segir að megi að mestu rekja til þáttanna Biggest Loser Ísland og markaðsherferðar í kringum þættina.