Í byrjun maí voru 19.989 bílaleigubílar skráðir á Íslandi. Á sama tíma í fyrra voru þeir 16.739 og hefur bílunum því fjölgað um ríflega 19,4% milli ára að því er kemur fram í Morgunblaðinu.

Skráðir bílaleigubílar hafa aldrei verið fleiri en í september í fyrra en þá voru þeir 21.405 talsins. Þeim fækkaði yfir vetrarmánuðina en tók þeim að fjölga á ný í mars. Þá voru bílarnir 17.693 talsins eða álíka margir og þeir voru á árinu 2015.