Icelandair flutti um 278.500 þúsund farþega í júlí sl., sem er 10% fjölgun á milli ára í júlímánuði. Þetta er jafnframt mesti fjöldi farþega sem félagið hefur flutt á einum mánuði frá upphafi eins og fram kemur í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group. Fyrra met var slegið í júlí í fyrra.

Framboð félagsins í mánuðinum jókst um 11% á milli ára. Sætanýting Icelandair í júlí var 85,3% og stóð í stað á milli ára. Þá hefur sætanýtingin aukist um 2,5% á milli ára það sem af er þessu ári.

Icelandair hefur nú flutt rúmlega 1,1 milljón farþega það sem af er ári sem er 16% fjölgun á milli ára. Þá hefur framboð félagsins aukist um 14% á milli ára, þannig að farþegafjöldinn hefur aukist umfram framboð.

Heildarfjöldi farþega hjá Icelandair í fyrra nam tæplega 1,75 milljón farþega, samanborið við tæplega 1,5 milljón farþega árið 2010 og tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009. Farþegafjöldi félagsins jókst þannig um 18% á milli ára  fyrra.

Í tilkynningu til Kauphallar kemur fram að farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 13%. Aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam 10%.

Nokkur aukning hjá Flugfélagi Íslands vegna Grænlands

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fjölgaði um 1% á milli ára í júlí þegar félagið flutti rúmlega 38 þúsund farþega. Framboð félagsins jókst um 2% á milli ára í júlí. Sætanýtingin nam um 70% og dróst þannig saman um tæp 4% á milli ára.

Þá hefur farþegafjöldi Flugfélags Íslands aukist um 4% á milli ára það sem af er þessu ári en framboðið staðið í stað.

Nýting flugflota sem nýttur er til útleigu en er í eigu Icelandair Group jókst um 10% á milli ára í júlí en hefur dregist saman um 2% á milli ára það sem af er þessu ári. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Seldum blokktímum hefur þó fækkað um 10% á milli ára það sem af er þessu ári en það má að hluta til rekja til þess að fraktvélar í leiguflugsverkefnum eru einni færri en í fyrra.

Fraktflug á vegum Icelandair Cargo jókst um 7% á milli ára í júlí og hefur aukist um 21% á milli ára það sem af er þessu ári. Þá hefur framboðið af fraktflugi aukist um 8% á milli ára það sem af er ári.

Nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar jókst um 2,7% á milli ára í júlí og hefur þá aukist um rúm 4% það sem af er ári. Á sama tíma hefur framboðið af hótelrými aukist um 14% það sem af er ári. Seldum gistinóttum fjölgarði um 10% á milli ára í júlí og hefur fjölgað um 22% það sem af er ári.