Farþegar Iceland Express voru tæplega níutíu og fimm þúsund í júlímánuði sem er 24% aukning frá sama mánuði fyrir ári. Er það mesti farþegafjöldi í sögu Iceland Express í einum mánuði. Sætanýting var um 85% á þessum tíma, sem er töluvert betri nýting en í fyrra.

Iceland Express jók sætaframboð félagsins um rúm 20% á þessu ári miðað við árið áður, enda fjölgaði farþegum félagsins á flesta áfangastaði. Þá má nefna, að sætanýting Iceland Express á ferðum félagsins 2010 var 80,5%, sem er með því besta sem gerist.  Í ár stefnir í enn betri sætanýtingu segir í tilkynningu frá Iceland Express.