Met var slegið í millilandaflugi hjá Icelandair í fyrra en þá höfðu aldrei fleiri flogið með vélum féalgsins. Farþegarnir voru 2.257.305 talsins og fjölgaði þeim um 12% á milli ára. Þar af  flugu 141 þúsund farþegar með vélum félagsins í desember. Það er 18% fleiri en í desember í fyrra, samkvæmt nýbirtum flutningatölum flugfélagsins. Framboðsaukning á milli ára nam 15% og sætanýting var 76,2% samanborið við 72,6% á sama tíma í fyrra.

Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur árleg aukning undanfarin ár numið 12-18% og eru farþegar félagsins nú orðnir einni milljón fleiri en árið 2009.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæp 20 þúsund í desember og fækkaði hins vegar um 10% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 10% samanborið við desember 2012. Sætanýting nam 65% og lækkaði um 1,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 8% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 45,7% samanborið við 46,1% í desember í fyrra, samkvæmt upplýsingum Icelandair.