2.383 einstaklingar voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK í lok árs 2017, 17% fleiri en um síðustu áramót, og í lok árs höfðu alls 12.856 leitað til VIRK frá stofnun starfsendurhæfingasjóðsins árið 2008. 1.854 einstaklingar komu nýir inn í þjónustu hjá VIRK á árinu 2017, 8.2% fleiri en árið 2016 og hafa ekki áður svo margir hafið starfsendurhæfingu á einu ári.

1.164 einstaklingar luku starfsendurhæfingarþjónustu árið 2017, svo til næstum jafnmargir og árið á undan. Meðaltímalengd einstaklinga í þjónustu hjá VIRK var 15 mánuðir 2017 og lengdist um 2 mánuði á milli ára.

Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK - fjárhagslegur og samfélagslegur - er mjög mikill þar sem hún hefur á undanförnum árum skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

7.333 einstaklingar hafa lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK og rúmlega 70% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.