Í haust hefja um 1700 nýnemar nám við Háskólann í Reykjavík, í grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi. Nemendum í HR hefur farið fjölgandi ár frá ári en aldrei hafa fleiri nýnemar hafið nám í háskólanum og eru þeir tæplega 20% fleiri en í fyrra. Einnig munu um 100 skiptinemar stunda nám við háskólann á haustönn. Nýnemar í grunnnámi verða boðnir velkomnir á nýnemadögum háskólans í dag og á morgun.

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, segir það ávallt tilhlökkunarefni fyrir kennara og allt starfsfólk háskólans að hefja nýtt skólaár. „Háskóli er samfélag og samskipti meðal nemenda og við kennara eru mikilvægur þáttur í góðri menntun. Við höfum því unnið hörðum höndum að því að nemendur geti sem allra mest stundað nám sitt í háskólanum og nýtt aðstöðuna þar, innan þeirra marka sem sóttvarnarreglur setja okkur á hverjum tíma. Í haust verða hefðbundnar stundaskrár kjarni skipulags kennslunnar, en fyrirlestrar verða sendir út í streymi eða teknir upp og gerðir aðgengilegir á netinu, til að tryggja aðgengi allra að kennslu, óháð takmörkunum. Lögð verður sérstök áhersla á að nemendur geti mætt í háskólann í verklega tíma, dæmatíma, umræðutíma og aðra tíma sem byggja á viðveru og samstarfi,“ segir Ari um skipulag skólastarfsins og bætir við: „Það er fagnaðarefni að unnt sé að hefja skólaárið með eins metra fjarlægðartakmörkunum í stað tveggja, eins og við höfðum gert ráð fyrir. Það gerir okkur kleift að sinna fleiri nemendum á staðnum á sama tíma og allt háskólastarfið verður fyrir vikið eðlilegra.“

Á nýnemadögum hitta nýnemar kennara sína og samnemendur og fá kynningu á aðstöðunni og  þjónustunni í HR, félagslífinu og ýmsu því sem skiptir máli varðandi það að hefja nám í háskóla. Vegna sóttvarnartakmarkana var nýnemum skipt upp í hópa og dagskráin stytt frá hefðbundnum nýnemadögum. Í byrjun annar mun háskólinn svo bjóða upp á stutta fyrirlestra á netinu sérstaklega ætlaða nýnemum, um ýmislegt það sem þarf að hafa í huga við upphaf háskólastarfs á tímum covid.