Atvinnuþátttaka kvenna var tæp 80% árið 2016 og hefur aldrei verið hærri. Þátttaka karla var hins vegar 87%. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands .

Þar segir einnig að óleiðréttur launamunur kynjanna hjá fullvinnandi launþegum var rúm 14% árið 2015. Tæplega helmingur kvenna á aldrinum 25 til 64 var með háskólamenntun árið 2016 samanborið við þriðjung karla á sama aldri.

Eins og sakir standa eru konur nú 48% alþingismanna og 44% kjörinna sveitarstjórnarmanna en í mörgum öðrum áhrifastöðum er hlutur kvenna lægri að því er kemur fram í fréttinni.

Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra fer eftir stærð fyrirtækis, til að mynda var það 22% hjá fyrirtækjum með 1 til 49 starfsmenn en 9% í fyrirtækjum með 250 starfsmenn eða fleiri árið 2015.