Í febrúar síðastliðnum flutti Icelandair yfir 143 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 24% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýjustu flutningatölum frá félaginu. Framboðsaukning  á milli ára í febrúar nam 19%. Sætanýting var 77,7% og jókst um 4,5 prósentustig á milli ára og hefur aldrei verið hærri í febrúar áður.

Í tilkynningu frá félaginu segir að farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 20 þúsund í febrúar sem er fækkun um 2% á milli ára.  Framboð félagsins í febrúar var dregið saman um 6% samanborið við febrúar 2014. Sætanýting nam 74,3% og jókst um 4,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára.  Fraktflutningar drógust saman um 0,7% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum Icelandair Group fjölgaði um 10% miðað við febrúar á síðasta ári. Herbergjanýting var 79,9% en hún nam 72,6% í febrúar í fyrra.