Munurinn á Icelandair og Wow air hefur aldrei verið minni þegar kemur að fjölda farþega. Þetta kemur fram í frétt Túrista.is .

Flugfélagið Wow air hóf flug í byrjun sumarsins 2012 og á árinu 2013 flugu 412 þúsund manns með félaginu  Árið 2013 flugu hins vegar 2,3 milljónir með Icelandair. Munurinn það árið var því sexfaldur.

Talsvert hefur dregið úr muninum á milli þessara tveggja stærstu flugfélaga Íslands. Á fyrri helmingi þessa árs var munurinn þrefaldur á flugfélögunum, en í seinasta mánuði var hann einungis tvöfaldur.

Farþegar Icelandair voru 484 þúsund í seinasta mánuði samanborið við 227 þúsund farþegar Wow air á sama tíma.

Gögn Túrista eru byggð á kauphallartilkynningum Icelandair og fréttatilkynningum Wow air.