Alexander Óðinsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra New Development og á sama tíma hefur Friðgeir Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, látið af störfum hjá fyrirtækinu. New Development hefur þróað og selur SAGA System ökurita, segir í fréttatilkynningu.

Alexander er 32 ára og starfaði áður hjá Securitas í sex ár og nú síðast sem sölustjóri á einstaklingsmarkaði. Alexander er með B.A. gráðu í ensku. ND er dótturfélag Securitas og var ársvelta 2007 um 100 milljónir. Hjá fyrirtækinu starfa 10 starfsmenn.

„Alexander mun gegna því hlutverki að stýra áframhaldandi vexti ND og takast á við spennandi tækifæri sem bíða fyrirtækisins. Stjórn ND þakkar fráfarandi framkvæmdastjóra Friðgeiri Jónssyni vel unnin störf á liðnum árum og óskum honum velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi,“ sagði Trausti Harðarson, stjórnarformaður ND, í fréttatilkynningu.