Stjórn Alfesca hefur hætt við að mæla með greiðslu 12 milljón evra arðs vegna fjárhagsársins 2007/08 á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 18. nóvember næstkomandi.  Í frétt frá félaginu segir að stjórninni þyki viðeigandi að halda í fjármuni sína vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum.