Alfesca hefur gengið frá kaupum á ítalska matvælabirgjanum D&F S.r.l (D&F) af stofnendum fyrirtækisins.

D&F er leiðandi birgir og dreifingaraðili matvæla á ítalska matvörumarkaðnum og hefur fram að þessu verið helsti dreifingaraðili fyrir vörur Alfesca á Ítalíu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Alfesca hefur á undanförnum árum aukið mjög sölu á sjávarafurðum, andalifrarkæfu og andakjöti á Ítalíu og náð fótfestu á ört vaxandi markaði fyrir hátíðarrétti og matvæli sem eru holl og einföld í framreiðslu. Kaupin á D&F munu styrkja stöðu Alfesca en betri aðgangur að ítalska markaðnum mun hraða framþróun félagsins,“ segir í tilkynningunni.

Starfsmenn D&F eru tólf talsins og nemur ársvelta um 8,8 milljónum evra. Kaupverð er ekki gefið upp.

Samkvæmt tilkynningunni voru kaupin fjármögnuð með eigin fjármunum Alfesca og munu þau ekki hafa teljandi áhrif á rekstrarniðurstöður félagsins. D&F verður áfram rekið af sama stjórnendateymi og verið hefur og  verður með í samstæðuuppgjöri Alfesca frá kaupdegi.

„Með því að sameina dreifigetu og sambönd D&F annars vegar og markaðsþekkingu og framleiðslukunnáttu Alfesca hins vegar verður okkur kleift að þróa frekar viðskiptin á hinum vaxandi ítalska markaði. Með leiðandi stöðu Alfesca í sínum vöruflokkum og sterkri stöðu D&F sem dreifingaraðila skapast traustur grundvöllur til að bjóða ítölskum viðskiptavinum breiða vörulínu af sjávarafurðum undir vörumerkjum Alfesca; Labeyrie, Farne og Delpierre,“ segir Xavier Govare, forstjóri Alfesca í tilkynningunni.

„Kaupin á D&F uppfylla þau skilyrði sem við gerum við yfirtökur og standast fjárhagslegar kröfur okkar. Þau styðja við sölu á vörumerkjum Alfesca og gefa okkur fullan aðgang að landfræðilega nýjum markaði í hröðum vexti Við bjóðum starfsmenn D&F hjartanlega velkomna til Alfesca-samstæðunnar og hlökkum til að þróa áfram viðskipti okkar á Ítalíu.“