Verð á laxi stóð í stað á erlendum mörkuðum í síðustu viku, að því er kemur fram í tölum Norsku Hagstofunnar frá því í morgun.

Laxaverðið hafði lækkað hratt í sjö vikur í röð en meðalverðið í síðustu viku stóð hins vegar í stað frá vikunni á undan. Verð á ferskum útfluttum laxi frá Noregi var 28% lægra í síðustu viku (31,2 NOK/kg) miðað við verðið í lok júní (43,1 NOK/kg) þegar það náði hámarki, segir greiningardeild Glitnis

Norðmenn eru stærstu einstöku framleiðendur á eldislaxi í heiminum og því er útflutningsverðið frá Noregi lýsandi fyrir heimsmarkaðsverð á laxi. Þótt meðalverðið hafi lækkað skarpt undanfarnar vikur er það enn fremur hátt í sögulegu ljósi og vel ásættanlegt fyrir framleiðendur. Flestar spár gera ráð fyrir auknu framboði af laxi frá framleiðendum á næsta ári sem ætti að öðru óbreyttu að pressa á verðið til frekari lækkunar, segir greiningardeildin.

Verðlækkunin á laxi undanfarnar vikur hefur komið sér vel fyrir fullvinnslufyrirtæki. Alfesca er eitt af þeim fyrirtækjum sem finna fyrir verðbreytingum á laxaafurðum þar sem dótturfyrirtæki þess, Labeyrie, Delpierre og Vensy eru stórir kaupendur á laxi, m.a. frá Noregi. Framundan er mikilvægur tími fyrir Alfesca þar sem félagið kaupir á haustmánuðum inn mikið magn af laxi til að selja fyrir mikilvægasta sölutímabil félagsins, jólasöluna, segir greiningardeildin.