Alfesca hf. hefur gert samning við Glitni hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins.

Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands hf.

Glitnir skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll Íslands, í hlutabréf Alfesca (A) að lágmarki 2.000.000 kr. Að nafnvirði á gengi sem Glitnir ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Glitnir er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 60.000.000,- að markaðsvirði.