Álfheiður Ingadóttir tók við ráðherradómi í heilbrigðisráðuneytinu á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag.

Ögmundur Jónasson sagði, sem kunnugt er, af sér embætti í gær.

Álfheiður er þingmaður Vinstri grænna og tók fyrst sæti sem þingmaður árið 2007. Áður var hún varaþingmaður.