Uppsveiflan á hlutabréfamörkuðum hélt áfram í Asíu nótt þótt hækkanir þar væru að vísu heldur minni en í Evrópu í gær og Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þannig hækkaði Nikkei í Tókíó um 1,4%, ASX í Astralíu um 0,2% og hlutabréfavísitalan í Sjanghæ um 1,7%. Þegar um 50 mínútur lifðu af viðskiptum i Hong Kong leit út fyrir að hækkunin yrði mest þar en þá hafði Hang Seng hækkað um tæplega 2%.