Netverslunin Alibaba sló eigin sölumet í gær, en þá var hinn svokallaði „ einhleypradagur “, en þá versla Kínverskir neytendur fyrir þúsundir milljarða, í anda föstudagsins svarta. BBC greinir frá.

Alibaba segir að það hafi slegið metið, 9,3 milljarða bandaríkjadala, um 1220 milljarða króna ,fyrir miðjan dag. Á fyrsta klukkutímanum hafði félagið selt vörur fyrir 3,9 milljarða dala, sem er næstum tvöfalt það sem það seldi á sama tíma í fyrra. Endanlegar tölur liggja ekki fyrir en Alibaba tilkynnti að á síðustu átta mínútunum fyrir miðnætti seldi félagið vörur fyrir um milljarð dala til viðbótar við það sem hafði selst yfir daginn.

Til samanburðar má nefna að á stærsta net-verslunardegi í Bandaríkjunum, Cyber Monday eru seldar vörur fyrir um 1,35 milljarð dala.