FL Group, Glitnir og verkfræðistofan VGK-Hönnun hafa stofnað fjárfestingarfélagið Geysir Green Energy og er tilgangur félagsins að fjárfesta í verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu víðs vegar um heim segir í frétt fyrirtækjanna.

Þar kemur fram að Geysir Green Energy mun einbeita sér að tækifærum í nýtingu jarðvarma, fjárfestingum í þróun og byggingu jarðvarmaorkuvera, annast yfirtöku á jarðvarmaorkuverum í eigu orkufyrirtækja og taka þátt í einkavæðingu orkufyrirtækja þar sem tækifæri gefast. Mikil reynsla er nú þegar innan fyrirtækisins á þessu sviði segir í fréttinni.

Félagið hefur ráðið Ásgeir Margeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur, sem forstjóra félagsins og mun hann vinna að uppbyggingu félagsins og stýra fjárfestingum þess.

Í upphafi leggja fjárfestar fram 100 milljónir bandaríkjadala eða um 7 milljarða króna með peningum og eignum sem falla að fjárfestingastefnu félagsins. FL Group mun verða leiðandi hluthafi í félaginu en auk Glitnis og VGK-Hönnunar er gert ráð fyrir að hlutafé verði selt til innlendra og erlendra aðila á næstu vikum og mun fyrirtækjaráðgjöf Glitnis annast sölu hlutafjárins.

Í fréttinni kemur fram að félagið mun stækka með fjárfestingum, samrunum, yfirtökum og þróun nýrra verkefna. Þeir fjárfestar sem þegar eru komnir að félaginu munu halda áfram að styðja við bakið á því og er miðað við að félagið geti ráðist í fjárfestingar sem nema meira en 1 milljarði bandaríkjadala þegar tækifæri gefast.

Talið er að orkuþörf jarðarbúa muni tvöfaldast á næstu 50 árum og mun hlutfall sjálfbærrar orkuframleiðslu aukast á kostnað hefðbundnari orkugjafa. Evrópusambandið stefnir á 50% aukningu sjálfbærrar orkuframleiðslu fyrir árið 2020 og Bandaríkin hyggjast tvöfalda sjálfbæra orkuframleiðslu á næstu 10 árum, meðal annars með viðamikilli uppbyggingu jarðvarmavirkjana. Samkeppnishæfni jarðvarma er mjög mikil en beislun hans til raforkuframleiðslu hefur hlutfallslega mun lægri kostnað í för með sér en til dæmis nýting sólarorku.

Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis segir í frétt félagsins: ?Með stofnun Geysis verður til mjög öflugt fjárfestingarfélag í orkuiðnaði. Tækifærin framundan eru óþrjótandi og ég trúi því að þegar saman koma kraftar þeirra sem þekkinguna hafa annars vegar og fjármagnið hins vegar, verði leyst úr læðingi mikil orka. Það er sérstaklega ánægjulegt fyrir mig að taka nú þátt í þessari útrás, eftir áratugalangt starf á íslenskum orkumarkaði.?

Hannes Smárason, forstjóri FL Group segir í frétt félagsins: ,,Þetta er spennandi nýjung fyrir FL Group. Enginn vafi leikur á því að sjálfbær orkuframleiðsla verður heiminum mjög mikilvæg á næstu árum og áratugum. Með því að stilla saman strengi ólíkra aðila, geta íslensk fyrirtæki náð sterkri stöðu á alþjóða orkumörkuðum og um leið geta þau nýtt þá miklu þekkingu sem til er í landinu í þágu efnahagslegra framfara og umhverfisvænni orkuframleiðslu. Það er fagnaðarefni fyrir FL Group að taka þátt í framsæknu verkefni sem hefur þetta tvennt að leiðarljósi.?

Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segir bankann leggja mikla áherslu á að vera leiðandi í ráðgjöf og fjármögnun á sviði endurnýjanlegrar orku, einkum jarðvarma. ?Með nýtingu jarðvarma ná efnahagsleg og umhverfisvæn sjónarmið saman. Glitnir leggur metnað í að skapa fjárhagslegar aðstæður sem geta leitt til hreinna umhverfis samhliða bættum lífskjörum til framtíðar. Möguleikarnir eru gríðarmiklir á þessu sviði og við teljum okkur í mjög góðri stöðu til að nýta þá.?

Runólfur Maack, framkvæmdastjóri VGK-Hönnunar segir Geysi Green Energy vera félag sem hafi afl til þess að hrinda hugmyndum í framkvæmd. ?Á undanförnum árum og áratugum hafa verkfræðingar á Íslandi haft fjölmargar hugmyndir að verkefnum á þessu sviði en ekki haft fjárhagslegan styrk til að koma þeim í verk. Með stofnun Geysis sameinum við annars vegar þá tækniþekkingu sem er til staðar á Íslandi og hins vegar hæfni á sviði alþjóðlegra fjárfestinga, Fyrirtækin sem standa að Geysi eru í forystu hvert á sínu sviði og því mjög spennandi tímar framundan.?