Eignarhaldsfélagið AVION Group tekur formlega til starfa um næstu áramót og verður það skráð á Íslandi. Meginstarfsemi hins nýja félags er rekstur alþjóðlegra flugfélaga og tengdrar starfsemi. Avion Group mun samanstanda af flugfélögunum Air Atlanta Icelandic (Ísland), Íslandsflug (Ísland), Air Atlanta Europe (Bretland) og Excel Airways (Bretland), sem og öðrum fyrirækjum í flugiðnaði.

Blaðamannafundur hefur verið boðaður í dag til að kyna starfsemi félagsins.