Loksins fæst hið þekkta og vinsæla verkjalyf Alka-Seltzer® á Íslandi. Yfir 60 ár eru síðan Alka-Seltzer® kom fyrst á markað og er það nú eitt þekktasta verkjalyf í heiminum. Alka-Seltzer® er fáanlegt í yfir 90 löndum og hefur fyrir löngu sannað gildi sitt sem áhrifaríkt verkjalyf. Alka-Seltzer® er einnig þekkt fyrir skjóta verkun og nota því margir það við timburmönnum.

Alka-Seltzer® freyðitöflur fást í lyfjaverslunum í 20 stk. pakkningum og eru ekki lyfseðilsskyldar. Framleiðandi Alka-Seltzer® er Bayer AG en umboðshafi á Íslandi er PharmaNor hf.