Allan Jensen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Pickenpack Gelmer, sem er í eigu Icelandic Group [ IG ]. Allan Jensen er ábyrgur fyrir framleiðslu og Torsten Krüger er ábyrgur fyrir stjórnun.  Finnbogi Baldvinsson, nýráðinn forstjóri Icelandic Group, stýrir stjórn Pickenpack Gelmer sem stjórnarformaður félagsins.  Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Áður en Allan Jensen hóf störf hjá Pickenpack Gelmer var hann verksmiðjustjóri í rækjuverksmiðju á Grænlandi frá árinu 2004.  Hann útskrifaðist með próf í stjórnun frá Copenhagen West Business College 2004.