Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, sagði við upphaf opins umræðufundar Samtaka atvinnulífsins að rétti tíminn til afnám gjaldeyrishafta væri núna. Hann sagði fá verkefni vera mikilvægari í íslensku efnahagslífi en afnám hafta á fundi í gærmorgun undir yfirskriftinni Rjúfum Íslandsmúrinn . Þorsteinn sagði fórnarkostnaðinn við gjaldeyrishöftin mikinn en ósýnilegan. Tækifæri tapist, ný fyrirtæki verði ekki til, auk þess sem vöxtur sem geti skilað þjóðarbúinu miklum verðmætum verði ekki að veruleika. Hann sagði farsælt afnám hafta nátengt skynsamlegri niðurstöðu í kjaraviðræðum á almennum og opinberum vinnumarkaði. Mikilvægt væri að kjarasamningarnir raski ekki jafnvæginu sem náðst hafi í efnahagslífinu.

Fram kemur í frétt á vef Samtaka Atvinnulífsins að sex ár hafi farið í undirbúning afnáms hafta og nú sé kominn tími til að láta slag standa. Stöðugleiki ríki í efnahagslífinu, verðbólga sé lág, ríkisfjármál í jafnvægi og afgangur af viðskiptum við útlönd. Auk þess sé efnahagshorfur góðar og spár gera ráð fyrir góðum hagvexti á komandi árum.

Seðlabankinn hefur safnað ríflega 215 mö.kr. frá ársbyrjun 2010, en þar af nema uppsöfnuð gjaldeyriskaup frá ársbyrjun 2014 ríflega 155 mö.kr. Seðlabankinn hefur á fyrstu fjórum mánuðum þess árs stækkað gjaldeyrisforðann tvöfalt meira en hann gerði á sama tíma í fyrra. Áætla má að gjaldeyriskaup á þessu ári gætu numið allt að 200 ma. kr. Útlit er því fyrir að í árslok 2015 muni gjaldeyrisforðinn duga til að mæta öllum erlendum skammtímaskuldum þjóðarbúsins að viðbættum öllum aflandskrónueignum.

Aukið gjaldeyrisinnflæði, léttari afborgunarferill og bætt aðgengi innlendra aðila að erlendum lánamörkuðum hefur dregið úr greiðslujafnaðarvanda þjóðarbúsins og mun það auðvelda úrlausn annara áskoranna sem snúa að útflæði krónueigna til skamms tíma. Á endanum ræður efnhagsleg staða og horfur þjóðarbúsins hversu mikið útflæðið verður til lengri tíma litið.

Þrenns konar hindranir eru við afnám hafta. Þær snúa að uppgjöri þrotabúa, að mögulegu útflæði annarra erlendra aðila og að mögulegu útflæði innlendra aðila.  Umfang útfæðis við afnám hafta mun aldrei koma fyllilega í ljós fyrr en á reynir. Það veltur á ýmsum breytum meðal ananrs á trú innlendra og erlendra aðila á afnámsferlinu og aðgengi innlendra aðila að erlendum lánamörkuðum.

Nafnvaxtamunur við útlönd svipar til þess þegar vatamunarviðskipti stóðu sem hæst á árunum 2006-2007. Því telur SA að miðað við stöðuna í dag sé því allt eins líklegt að við losun hafta muni koma til verulegs gjaldeyrisinnflæðis. Sex árum eftir að undirbúningur afnáms hófst sé hægt að haka í öll boxin, aðstæður gætu því vart verið betri til að taka af skarið.

Nánar má sjá greiningu efnaagssviðs SA hér .