Íslenski dansflokkurinn frumsýndi Emotional um helgina en það eru tvö dansverk sem eiga það sameiginlegt að dansað er af miklu krafti. Fyrra verkið Meadow er eftir Brian Gerke og EMO1994 er eftir Ole Martin Meland.

„Grímuverðlaunahafinn Brian Gerke leitar aftur í æskuslóðir sínar í Montana í Bandaríkjunum við gerð verksins Meadow og úr því verður hugnæmt og safaríkt dansverk sem reynir á tæknilega færni dansaranna. Brian flutti til Íslands 2007 og stofnaði dansflokkinn „Steinunn og Brian“ með Steinunni Ketilsdóttur og hafa þau komið fram í meira en 50 mismunandi leikhúsum í Evrópu, á Íslandi og í Bandaríkjunum. Þau sömdu til að mynda verkið Heilabrot fyrir Íslenska dansflokkinn vorið 2011. Brian gekk til liðs við Íslenska dansflokkinn sem dansari haustið 2012 og er Meadow fyrsta dansverkið sem hann semur einn síns liðs fyrir flokkinn,“ segir í tilkynningu frá Íslenska dansflokknum.

VB Sjónvarp leit við á æfingu fyrir helgi.