Öll félögin í Kauphöll Íslands hafa lækkað það sem af er degi nema Hagar.

Mest lækkun er á bréfum VÍS, eða 1,45%. Næst kemur Össur með 1,05% eftir miklar hækkanir frá uppgjör félagsins.

Icelandair hefur aðeins lækkað um 0,29%, en ekki er ljóst hvort verkfall flugmanna heldur áfram.

Hagar hafa hækkað um 0,83%.