Allied Irish Bank, sem er annar stærsti banki Írlands hefur misst 13 milljarða evra, 2.000 milljarða króna, af innlánsreikningum sínum það sem af er þessu ári. Þetta kemur í tilkynningu á vef bankans sem birt var í dag.

Hefur því útstreymi af innlánsreikningum náð úttektum af reikningum Bank of Ireland sem er stærsti banki Írlands, . Lán Seðlabanka Evrópu til AIB hafa þrefaldast frá því í júní þegar þau voru innan við 10 milljónir evra. Í dag tilkynnti bankinn að lánin væru komin í 27 milljarða evra.