„Á síðasta stjórnarfundi ákvað stjórn Vantrúar að frá og með 1. mars verði allir Íslendingar skráðir í Vantrú. Þú, kæri lesandi, verður því meðlimur í Vantrú, fjölmennasta félagi landsins, nema þú skráir þig sérstaklega úr félaginu.“

Þetta kemur fram á vefsíðu Vantrúar , félagi trúleysingja, en helsta markmið félagsins er að veita mótvægi við boðun hindurvitna og vinna gegn áhrifum þeirra í samfélaginu.

Á vefsíðunni segir að fólk sem eignist börn eftir mánaðamótin 1. mars þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að börnin þeirra missi af því að verða hluti af þessum lifandi samfélagi, þar sem þau verði skráð sjálfkrafa í Vantrú, óháð skráningu foreldra og án vitundar eða samþykkis þeirra.

„Ef svo ólíklega vill til að þú vilt ekki gerast meðlimur í Vantrú, þá er lítið mál að skrá sig úr Vantrú. Ef þú ert orðinn 18 ára þarft þú einungis að senda tölvupóst með tilkynningu um úrsögn ásamt skönnuðu persónuskilríki á tölvupóstfangið ursognurvantru(at)vantru.is,“ segir jafnframt og er bent á að vissulega sé það þó ekki næstum eins einfalt og að skrá sig úr ríkiskirkjunni, en hafa verði í huga að áður fyrr þurfti fólk að mæta til Þjóðskrár á opnunartíma á virkum dögum til þess að skrá sig úr ríkiskirkjunni.

Opinberlega viðurkennd aðferð

„Ýmsir innan Vantrúar mótmæltu þessu fyrirkomulagi, en stjórnin benti þeim réttilega á að í raun væri þetta opinberlega viðurkennd aðferð við skráningu á félagatali á Íslandi. Samskonar aðferð hefur til dæmis verið beitt heillengi í trúfélagsskráningu á Íslandi.

Áður fyrr voru allir Íslendingar skráðir í Þjóðkirkjuna hvort sem það líkaði betur eða verr, það var beinlínis ólöglegt að vera utan Þjóðkirkjunnar. Sú skráning hefur svo erfst allt til þessa dags og fólk hefur þurft að leggja það sérstaklega á sig að skrá sig úr félagi sem það skráði sig aldrei í.

Það er því ljóst að væntanleg metaukning meðlima okkar á sér fyrirtaks fordæmi og hlýtur að teljast álíka réttmæt,“ segir jafnframt í fréttinni.