Söluvöxtur Össurar á árinu 2011 var 9% mældur í staðbundinni mynt. Þar af jókst sala á spelkum og stuðningsvörum um 15% söluvexti en söluvöxtur í stoðtækjum var 4%. Heildarsalan nam 401 milljón Bandaríkjadala samanborið við 359 milljónir dala árið 2010. Öll landsvæði og vörumarkaðir sýndu vöxt á árinu.

Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam 76 milljónum Bandaríkjadala eða 19% af sölu. Framlegð nam 249 milljónum dala eða 62% af sölu og hagnaður nam 37 milljónum dala eða 9% af sölu.

Í tilkynningu frá Össuri er haft eftir Jóni Sigurðssyni, forstjóra: "Árið 2011 var enn eitt árið þar sem við sýndum góðan söluvöxt og arðsemi. Sem fyrr var nýsköpun lykilþáttur í árangri okkar og öll landsvæði og vörumarkaðir uxu. Einn stærsti áfangi okkar á árinu var opnun verksmiðjunnar í Mexíkó sem eykur framleiðslugetu okkar og skapar ný tækifæri. Annar stór áfangi var þegar við kynntum enn eina viðbótina við Bionic vörulínuna okkar, SYMBIONIC LEG, sem er fyrsta vara sinnar tegundar í heiminum."

Helstu tíðindi ársins:

* Fjárfesting í stærra söluneti - Fjárfesting í stærra söluneti hefur verið ein af aðalástæðum vaxtar á árinu. Í Bandaríkjunum hefur áherslan verið á áframhaldandi fjárfestingu í sölu- og dreifineti sem hefur haft jákvæð áhrif á sölu þar. Í Evrópu hefur aðaláherslan verið á Þýskaland og Frakkland. Í Frakklandi er svo sérstök áhersla á að ná til lækna og annarra sem samþykkja og velja vörur, jafnt spelkur og stuðningsvörur og vörur vegna blóðrásarvanda.

* Framleiðsla í Mexíkó - Verksmiðja Össurar í Tijuana í Mexíkó var formlega opnuð í september. Össur hóf uppbyggingu á verksmiðjunni ári fyrr og hefur framleiðsla á nokkrum vörulínum verið flutt þangað frá Bandaríkjunum. Verksmiðjan er nú þegar á meðal stærstu og mikilvægustu framleiðslueininga Össurar og mögulegt verður að auka framleiðslugetuna á næstu árum til þess að styðja við framtíðarvöxt félagsins. Þess er vænst að áætlaður sparnaður vegna verksmiðunnar, um 4 milljónir Bandaríkjadala, komi fram árið 2012.

* Stöðugt framboð á nýjum vörum - Á árinu voru 25 nýjar vörur kynntar. Gott jafnvægi hefur verið á milli nýrra vara í báðum vöruflokkum, þ.e. spelkum og stuðningsvörum og stoðtækjum. Margar spennandi nýjungar í spelkum og stuðningsvörum voru kynntar og í stoðtækjunum bar kynningin á SYMBIONIC LEG hæst, en það er fyrsti gervifótur sinnar tegundar á markaðnum.

Áætlun 2012 - Fyrir árið 2012 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og að EBITDA, leiðrétt fyrir einskiptistekjum og -kostnaði, verði á bilinu 20-21% af veltu fyrir árið í heild.