Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrum forsætisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, segir í pistli á Facebook síðu sinni að hann hafi tekið eftir því að forsætis- og fjármálaráðherra væru býsna kátir með það að „ríkið sé komið í bisness með frægum vogunarsjóðum.“ Hann segir að fjárfestarnir séu allir meðlimir í „Íslandsklúbbnum.“

„Aðalatriðið er víst að þetta eru útlendingar og það er svo mikið styrkleikamerki að útlendingar vilji kaupa eitthvað á Íslandi. Svo virðast ráðherrarnir telja að þessir aðilar hafi einfaldlega séð tækifæri í langtímarekstri banka á Íslandi. Ætli tækifærið felist t.d. í því að lækka vexti fasteignalána á Íslandi? Þá er það líklega bara tilviljun að þetta skuli vera sömu aðilar og keyptu kröfur á bankana á hrakvirði og beittu svo ýmsum ráðum til að hámarka heimturnar (og eru reyndar þeir sömu og eru að selja sjálfum sér bankann núna),“ skrifar fyrrum forsætisráðherra.

„Eflaust tilviljun“

Hann segir það „eflaust tilviljun“ að hámarkseignarhlutur hvers sjóðs skuli vera 9,99% og bendir á að við 10% hlut teljast menn vera komnir með virkan eignarhlut sem kallar á á sérstaka athugun FME á hluthöfum. Hann tekur enn fremur fram að það eigi einnig við að sama eigi við ef tengdir aðilar fara yfir 10%.

Sigmundur endar pistilinn svona: „[..] við vitum ekki hvernig hinir nýju eigendur tengjast að öðru leyti en því að vera allir meðlimir í „Íslandsklúbbnum".“

Hér er hægt að lesa færslu Sigmundar Davíðs í heild sinni hér:

Ég sé að forsætis- og fjármálaráðherra eru bara býsna kátir með að ríkið sé komið í bisness með frægum vogunarsjóðum. Aðalatriðið er víst að þetta eru útlendingar og það er svo mikið styrkleikamerki að útlendingar vilji kaupa eitthvað á Íslandi.

Svo virðast ráðherrarnir telja að þessir aðilar hafi einfaldlega séð tækifæri í langtímarekstri banka á Íslandi. Ætli tækifærið felist t.d. í því að lækka vexti fasteignalána á Íslandi? Þá er það líklega bara tilviljun að þetta skuli vera sömu aðilar og keyptu kröfur á bankana á hrakvirði og beittu svo ýmsum ráðum til að hámarka heimturnar (og eru reyndar þeir sömu og eru að selja sjálfum sér bankann núna).

Ég sá líka að í svari til mbl kom fram að verðið, 0,81 króna á hlut, byggst á „nýj­ustu fjár­hags­upp­lýs­ing­um Ari­on banka á þeim tíma" [þegar samið var við sjóðina]. Það hefur þá líklega ekkert með það að gera að ef verðið hefði farið niður í 0,8 hefði forkaupsréttur ríkisins virkjast.

Eflaust er það þá líka tilviljun að hámarkseignarhlutur hvers sjóðs skuli vera 9,99%. En við 10% teljast menn vera komnir með „virkan eignarhlut" sem kallar á sérstaka athugun FME á hluthöfunum.
Reyndar á það sama við ef tengdir aðilar fara yfir 10% en við vitum ekki hvernig hinir nýju eigendur tengjast að öðru leyti en því að vera allir meðlimir í „Íslandsklúbbnum".