Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag að því er ríkisstjórnin tók ákvörðun um á fundi sínum í morgun. Þar með mun jafnframt sá valkostur að fara í 14 daga sóttkví í stað sýnatöku verða afnuminn.

Ákvörðunin er sögð í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins , tekin í ljósi alvarlegrar stöðu faraldurs kórónuveirunnar, sem veldur Covid 19 sjúkdómnum, víða um heim. Þar með verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og fimm daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí.

Þá verða tekin varfærin skref til afléttingar sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Hætta á að smit leki úr sóttkví

Það er mat sóttvarnalæknis að hætt sé við því að smit leki gegnum varnir á landamærum, einkum hjá þeim sem velja 14 daga sóttkví í stað sýnatöku. Það er sagt sérlega brýnt nú að stemma stigu við slíku vegna þeirrar fyrirsjáanlegu og afmörkuðu hættu sem stafar af nýju afbrigði veirunnar sem ítrekað hefur greinst hjá sýktum einstaklingum á landamærum.

Gjaldfrjáls skimun hefur ekki leitt til þess að fækkað hafi nægjanlega í hópi þeirra sem velja 14 daga sóttkví í stað skimunar. Heilbrigðisráðherra hefur því ákveðið að setja reglugerð þar sem sýnataka verður gerð að skyldu. Ekki verður hægt að velja sóttkví í stað sýnatöku nema í algerum undantekningartilvikum, s.s. af læknisfræðilegum ástæðum.

Komufarþegar sem geta framvísað gildu vottorði sem sýnir fram á að COVID-19 sýking sé afstaðin eru áfram undanþegnir sóttvarnaaðgerðum á landamærum og það sama mun gilda um komufarþega sem geta framvísað gildu bólusetningarvottorði.

Vonir standa til þess að á næstu mánuðum muni bólusetning smám saman draga úr þeirri hættu sem af faraldrinum stafar samhliða því sem sóttvarnaaðgerðum ríkja verður áfram beitt til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Því verður fyrirkomulag sóttvarna á landamærum endurskoðað, mánaðarlega, og þá einkum til rýmkunar, eftir því sem aðstæður leyfa.