Dáleiðsluskóli Íslands hefur verið starfandi síðan árið 2012, en stofnað var einkahlutafélag um starfsemina fyrr í vikunni. Ingibergur Þorkelsson dáleiðslutæknir stendur að baki skólanum. „Ég lærði dáleiðslu í Glasgow 2009 og mér fannst þetta vanta á Íslandi svo ég dró kennarann hingað og hélt námskeið. Við byrjuðum með dáleiðslunámskeið í maí 2011. Kennurunum hefur svo fjölgað að undanförnu og næsta skref er að halda námskeiðin á íslensku.“
Ingibergur segir að hægt sé að áorka margt með dáleiðslu. Hún snúi að andlegri hlið fólks og geti hjálpað fólki á mörgum vígstöðum, til dæmis við að hætta að reykja eða léttast. „Svo getur þetta hjálpað til við áföll eða að ná betri árangri í lífinu.“
Hjúkrunarfræðingar nema dáleiðslu
Um 200 manns hafa sótt námskeið hjá Dáleiðsluskólanum frá því að hann hóf starfsemi sína. „Það er mjög algengt að hjúkrunarfræðingar læri hjá okkur dáleiðslu fyrir sína starfsemi. Maður getur notað dáleiðslu við að gera svo margt og maður lærir hvernig hugurinn virkar. Maður sér til dæmis að þeim sem koma á námskeiðið líður alltaf betur og betur með hverjum tíma. Á útskriftarmyndinni eru allir orðnir svífandi glaðir,“ segir Ingibergur.
Ingibergur segir Félag dáleiðslutækna nýlega hafa sett upp leitarsíðu á vefsíðu félagsins. „Í leitarvélina getur fólk sett inn ákveðin atriði sem það vill laga hjá sér, og þá fær það upp lista af dáleiðslutækni sem passar nákvæmlega við þau atriði sem þarf að laga.“
Dáleiðsluskólinn heldur námskeið í fyrsta sinn á íslensku í febrúar næstkomandi, en kennarar verða Jón Bjarni Steinsson og Anna Lísa Björnsdóttir. Munu nemendur byrja að dáleiða hver annan strax á fyrsta degi. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vefsíðu skólans, daleidsla.is.