Allir sakborningar í Aurum málinu svokallaða voru sýknaðir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem féll í dag.

Í málinu voru þeir Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson, einn aðaleigandi bankans, Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, og Bjarni Jóhannesson, fyrrverandi viðskiptastjóri Glitnis banka, ákærðir fyrir meint umboðssvik vegna sex milljarða króna lánveitingar Glitnis til félagsins FS28 sumarið 2008. Lánið var veitt til að fjármagna kaup FS38 á tæplega 26% hlut Fons hf. í breska félaginu Aurum Holdings.

Ríkið mun greiða málskostnað hinna ákærðu, samkvæmt dómi héraðsdóms.