Hagfræðideild Háskóla Íslands býður öllum áhugamönnum um hagfræði og efnahagsmál að sækja sér að kostnaðarlausu háskólafyrirlestra í þjóðhagfræði handa byrjendum nú í haust.

Þjóðhagfræði I er inngangsnámskeið og krefst ekki sérstaks undirbúnings umfram almenna þjálfun til stúdentsprófs eða samsvarandi. Til að áhugasamir gestir geti nýtt sér kennsluna sem best verður upplýsingavefur námskeiðsins hafður opinn og aðgengilegur öllum. Þar verður hægt að nálgast námslýsingu, glærur og annað efni tengt fyrirlestrunum. Vefslóðin verður kynnt í upphafi námskeiðsins.

Markmið námskeiðsins er að miðla innsýn í þjóðhagfræði, helstu kenningar hennar og hugtök, og veita yfirsýn yfir helstu viðfangsefni þjóðhagfræðinga og ýmis lögmál efnahagslífsins. Rækt er lögð jöfnum höndum við fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins og tengsl þess við ýmis efnahagsmál sem eru ofarlega á baugi á Íslandi og úti í heimi.

Fyrirlesarinn er Þorvaldur Gylfason, prófessor, og heldur hann fyrirlestra tvisvar í viku, á þriðjudögum og miðvikudögum kl. 11:40 til 13:10 í stofu 102 á Háskólatorgi. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn þriðjudaginn 28. ágúst n.k. kl. 11:40. Námskeiðinu lýkur 21. nóvember. Aðstoðarkennari er dr. Oddgeir Á. Ottesen hagfræðingur. Hér er tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á þjóðhagfræði.