Geir H. Haarde er enn í Þjóðmenningarhúsinu að ræða um dómsniðurstöðu Landsdóms við verjanda sinn Andra Árnason. Hvorki Andri né Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari Alþingis hafa tjáð sig við fjölmiðla um málið fyrr en þau hafa farið yfir niðurstöðuna.

Geir H. Haarde var dæmdur fyrir annan ákærulið í málinu, sem fjallaði um það að Geir hélt ekki ríkisstjórnarfund eftir þjóðnýtingu Glitnis í lok september árið 2008.

Dómurinn er á fimmta hundrað síður.