Fasteignamarkaður - Myndir
Fasteignamarkaður - Myndir
© BIG (VB MYND/BIG)
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 15. júlí til og með 21. júlí 2011 var 96. Þar af var 81 samningur um eignir í fjölbýli, 14 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.447 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,5 milljónir króna. Þetta kemur fram í á vef Þjóðskrár Íslands.

Þá var þremur kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum á sama tíma. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 69 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,1 milljón króna.

Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 106 milljónir króna og meðalupphæð á samning 15,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 48 milljónir króna og meðalupphæð á samning 15,8 milljónir króna.