Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag viðamikla uppbyggingaráætlun í sértækum húsnæðisúrræðum fyrir einstaklinga með fötlun til ársins 2030 að því er segir í fréttatilkynningu frá borginni.

Um er að ræða þriggja áfanga áætlun sem unnin er  í samræmi við hússnæðisáætlun Reykjavíkurborgar og stefnu Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.

Uppbyggingaráætluninni er ætlað að koma til móts við þá  einstaklinga sem nú eru á biðlista eftir sértæku húsnæðisúrræðum og þeim sem koma til með að þurfa á slíku húsnæði að halda.

Í fyrsta áfanga er frá 2018-2020 er gert ráð fyrir 80-90 íbúðum, í öðrum áfanga  2021-2025 er gert ráð fyrir 40-50 íbúðum og í þriðja áfanga til ársins 2030 er gert ráð fyrir 35-45 íbúðum.