Gengi bréfa allra félaga á markaði hafa hækkað það sem af er degi - að undanskildu gengi bréfa í Össuri - en engin viðskipti voru með bréf félagsins. Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq hefur hækkað um 1,67% það sem af er degi.

Gengi bréfa HB Granda hefur hækkað mest í dag eða um 3,13% í 29 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa Eikar - fasteignafélags hafa einnig hækkað talsvert eða um 2,72% í 325 milljón króna viðskiptum það sem af er degi. Gengi bréfa Eimskips hafa jafnframt hækkað um 2,42% í 145 milljón króna viðskiptum.

Í gær slitnaði upp úr stjórnarmyndunarviðræðum fimm flokka frá miðju til vinstri.