Allt virðist komið í háaloft á milli Birgis Jónssonar, sem lét af starfi forstjóra Iceland Express í gær eftir aðeins 10 daga í starfi, og stjórnar Iceland Express.

Eins og fram kom hér á vb.is í gærkvöldi sagði Birgir upp starfi sínu í gær og bar því við að hann hefði ekki notið þess stuðnings sem á þurfti að halda til að gera breytingar á félaginu.

Stjórn Iceland Express sendi í kjölfarið frá sér tilkynningu þar sem fram kom að Birgir hafi ætlað að ráða vini og kunningja í vinnu hjá félaginu og það hafi stjórnin ekki samþykkt. Forstjórastarfið fæli ekki í sér eigendavald yfir félaginu, eins og það var orðað í tilkynningunni.

Í fréttum RÚV í morgun kom fram að Birgir hafi ætlað að ráða sambýliskonu sína í vinnu. Nú fyrir skömmu sendi Birgir frá sér aðra tilkynningu, þrátt fyrir að hafa í gær sagt að hann myndi ekki tjá sig um málið í fjölmiðlum.

„Samt er það þannig að þegar á mann er ráðist með svona ómaklegum, ódýrum og ósönnum hætti þá verður maður að snúast til varnar og verja heiður sinn og sinna,“ segir Birgir í tilkynningunni. Hann sakar stjórn Iceland Express um að hafa lekið því til fréttastofu RÚV að hann  hafi ætlað að ráða sambýliskonu sína til starfa.

Þá framsendir Birgir tölvupóstsamskipti sín og Pálma Haraldssonar, eigenda Iceland Express, frá síðustu helgi þar sem Pálmi lýsti sig samþykkan ráðningunni. Þá hefur Birgir eftir honum munnlega að „það finnist ekki frambærilegri kona á landinu til að gegna þessar stöðu" og vísar til sambýliskonu sinnar.

Í tölvupósti sem Birgir sendir Pálma laugardaginn 24. sept. sl. segir:

„Svo ég segi þér líka eins og er, þá vil ég fá XXXXXX þarna inn yfir crewið, þjónustu um borð og raunar til að sameina customer service í öllu félaginu í samvinnu við viðkomandi stjórnendur. Tengja það saman við skilaboðin úr markaðsvinnu ofl. Þannig að farþegarnir séu að upplifa heildar "experience" þegar þeir komast í snertingu við okkur.
Það sem böggar mig er það að hún er auðvitað konan mín og ég vil ekki fá neinn klíkustimpil. Hins vegar má heldur ekki sleppa besta fólkinu bara út af svona tengslum. Ef fólk sæi hennar prófíl á blaði án nafns þá er no brainer að fá hana þarna inn:

Hún er með:
MBA með áherslu á mannauð og customer service
BA í ferðamálafræði
20 ára reynslu úr flugheiminum
Fyrirverandi yfirfreyja IEX sem þekkir IEX mjög vel.

Eini mínusinn er að hún er konan mín. Á ég að láta það stoppa það? Það er eiginlega eitthvað sem þú þarft að ákveða, þetta stendur of nálægt mér.

Biggi“

Pálmi svarar sama dag og segir:

„Biggi þú færð sama svar
Ég treysti XXXXXX fullkomlega.  Það þurfa einfaldlega að koma nýjir vendir sem sópa best.
Ég mun ekki vera mótfallinn því að taka XXXXX inn
Kv
palmi“

Í tilkynningu sinni ítrekar Birgir að hann vilji ekki aðhafast neitt sem mun skaða félagið, „en hins vegar er rétt að minna alla á að ég er ekki fæddur í gær og hef langa reynslu af samskiptum við Pálma Haraldsson og er ekki hræddur við hann og hans fólk. Því eru öll atriðin sem við deilum um til með skriflegu samþykki hans og ég mun ekki hika við að verja hendur mínar og birta þau ef það reynist nauðsynlegt. Þó það sé einlæg ósk mín að þess gerist ekki þörf," segir Birgir.

Hér að neðan má sjá skjámynd af tölvupóstsamskiptum Birgis og Pálma. Fyrri myndin sýnir tölvupóst Birgis og sú seinni svar Pálma.

Tölvupóstsamskipti Birgis Jónssonar og Pálma Haraldssonar.
Tölvupóstsamskipti Birgis Jónssonar og Pálma Haraldssonar.

------

Tölvupóstsamskipti Birgis Jónssonar og Pálma Haraldssonar.
Tölvupóstsamskipti Birgis Jónssonar og Pálma Haraldssonar.
© vb.is (vb.is)