Innanríkisráðuneytið hefur opnað vefinn kosning.is þar sem birtar eru fréttir og upplýsingar er varða undirbúning og framkvæmd alþingiskosninganna 29. október næstkomandi.

Þar eru meðal annars upplýsingar um helstu dagsetningar í aðdraganda kosninganna, um kosningarétt og kjörgengi, listabókstafi og yfirkjörstjórnir, segir í fréttatilkynningu ráðuneytisins. Þar eru einnig birtar leiðbeiningar um hvar og hvernig unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar.