© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Spánska þingið samþykkti á dögunum frumvarp um umbætur á lífeyriskerfinu. Á sama tíma viðraði ríkisstjórnin hugmynd um að nota fjármuni í varasjóði almannatrygginga til að fjárfesta í skuldabréfum sem héraðsstjórnir landsins gefa út. Þannig væri unnt að aðstoða sjálfsstjórnarhéruð á Spáni sem hafa stofnað til mikilla skulda. Alls nemur upphæðin 155 milljörðum króna sem samsvarar um 10,9% af vergri landsframleiðslu Spánverja.

Fjallað er um hugmyndir stjórnvalda á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða . Þar kemur fram að í varasjóði almannatrygginga séu um 67 milljarðar evra, en hann fjárfestir einkum í spánkum ríkisskuldabréfum. Ekki hefur enn verið upplýst um hversu mikla fjármuni úr sjóðnum á að nota til að kaupa héraðsskuldabréf.

„Í nýjum lífeyrislögum á Spáni er kveðið á um að eftirlaunaaldur hækki úr 65 í 67 ár og breytingin taki gildi í áföngum á nokkrum árum. Þá munu Spánverjar þurfa að vinna í að minnsta kosti 37 ár til að eiga fullan lífeyrisrétt og munu ekki eiga rétt á að fara á eftirlaun fyrr en við 63 ára aldur. Þá er nú lögbundið að öryrkjar geti farið fyrr á eftirlaun hafi þeir greitt til lífeyriskerfisins í 25 ár,“ segir í frétt LL.

Bent er á að Spánverjar séu í sömu sporum og flestar aðrar Evrópuþjóðir. Þjóðin eldist hlutfallslega sem veldur lífeyriskerfinu augljósum vandræðum með að standa undir skuldbindingum sínum.