Almar Örn Hilmarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Iceland Express. Almar er 31 árs gamall og lögfræðingur að mennt. Hann varð framkvæmdastjóri Ágætis árið 1999 og eftir að Ágæti og Bananar sameinuðust árið 2001 stýrði Almar hinu sameinaða fyrirtæki. Í árslok 2002 tók hann svo við starfi framkvæmdastjóra Tæknivals.

Almar tekur til starfa hjá Iceland Express strax í þessari viku.