Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, bendir á það í grein í Viðskiptablaðinu í dag að krónan hafi styrkst talsvert gagnvart evru, eða um 10% á einu ári og yfir 20% síðustu þrjú árin. Hann telur að þessi þróun getur haft alvarlega áhrif á stóran hluta atvinnulífsins. „Hægt og bítandi dregur úr samkeppnishæfni útflutnings- og samkeppnisgreina hér á landi. Þannig tapast tækifæri og grundvöllur verðmætasköpunar til lengri tíma veikist“ segir Almar.

Hann telur að ekki næg umræða sé um þessi mál í íslenskri stjórnmálaumræðu. Þrátt fyrir að síðustu ár hafa einkennst af kröftugum hagvexti, auknum kaupmætti og lægra atvinnuleysi, þá tekur hann fram að „innlendir framleiðendur sem keppa við innfluttar afurðir búa við verri samkeppnisstöðu en áður. Styrkur krónunnar leiðir auðvitað líka til þess að gjaldeyristekjur vegna útflutnings fara minnkandi og skilyrði fyrir nýsköpun og þróun versnar. Fyrir þekkingariðnaðinn þýðir þetta á mannamáli að fyrirtæki fá færri krónur fyrir útflutninginn og launakostnaður er mun hærri en hjá samkeppnisaðilum erlendis. Við þessar aðstæður tapast viðskipti og fyrirtæki leitast við að færa starfsemi eða störf til svæða þar sem aðstæður eru hagfelldari.“

Mikilvægi afnáms hafta

Almar telur einnig það gífurlega mikilvægt skref að afnema fjármagnshöft að fullu. Í þessu ljósi bendir Almar á að „ljóst er að skilyrði fyrir losun hafta eru góð og raunar má fullyrða að styrkur gengis krónunnar um þessar mundir sé farin að hafa veruleg neikvæð áhrif á rekstur útflutnings- og samkeppnisfyrirtækja.

Bæði hefur nafngengi krónunnar hækkað auk þess sem laun vaxa mun hraðar hér á landi en í samkeppnislöndum okkar. Í því ljósi væri veiking á gengi krónunnar vel til þess fallin að bæta samkeppnishæfni Íslands og styðja við vöxt efnahagslífsins til lengri tíma litið.

Að lokum bendir Almar á að: „Það er í sjálfu sér ekkert hlutverk í hagstjórninni sem gengur beinlínis út á að beisla gengi krónunnar á einhvern hátt. Það er þó nokkuð augljóst að afnám hafta skiptir hér miklu máli og háir vextir Seðlabankans ýta klárlega undir styrkingu.

Markmið peningastefnunnar um stöðugt verðlag er svo sannarlega mikilvægt en ef hliðaráhrif þess skapa gott skjól fyrir erlent skammtímafjármagn með tilheyrandi gengishækkun og draga þannig úr tækifærum okkar til að skapa fjölbreyttara atvinnulíf og verðmætari störf þá hljótum við að spyrja spurninga. Það ættu allir að geta verið sammála um að á Íslandi er ekki aðalmálið að erlent fjármagn leiti í háa vexti. Það er mikilvægara að allur útflutningur styrkist og ekki síst iðnaður og starfsemi sem byggist á þekkingu og hefur blómstrað síðustu ár. Það þarf að hindra eins og hægt er að gengisþróun ryðji árangri síðustu ára úr vegi. Þá vakt þarf að standa af festu.“