Hópur fjárfesta hefur gengið frá kaupum á hlut ALMC í Straumi fjárfestingabanka hf. Eftir kaupin verða um 35% af hlutafé bankans í eigu starfsmanna og 65% í eigu fjögurra félaga sem eiga öll jafnan hlut hvert. Þau eru Sigla ehf., Ingimundur hf., Varða Capital ehf. og Eignarhaldsfélagið Mata hf. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þeir fjárfestar sem eru í forsvari fyrir félögin eru Tómas Kristjánsson og Finnur Reyr Stefánsson fyrir Siglu, Ármann Ármannsson og Ármann Fr. Ármannsson fyrir  Ingimund og Grímur Garðarsson og Jónas Hagan fyrir Varða Capital. Guðný, Eggert, Halldór og Gunnar Gíslabörn standa á bak við Eignarhaldsfélagið Mata hf.

Jakob Ásmundsson, forstjóri Straums, segir það mikið gleðiefni að fá þessa öflugu og fjársterku aðila í hluthafahóp Straums. Hann segir kaup þeirra í bankanum vera mikla viðurkenningu fyrir alla þá sem hafa tekið þátt í að byggja upp starfsemi bankans undanfarin ár. Hann telur þetta vera mjög jákvætt skref fyrir Straum og lítur björtum augum til framtíðar.