Héraðsdómur Salur 101
Héraðsdómur Salur 101
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag ALMC hf til að greiða Stapa lífeyrissjóði tæplega 5,2 milljarða króna.  ALMC hf hét áður Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki. Stapi hafði átt viðskipti við bankann.

Málið varðar kröfur, sem lýst var of seint í bú bankans vegna mistaka lögmannsstofu. Taldi Stapi að krafan ætti að halda gildi sínu þar sem Straumur-Burðarás fór ekki í gjaldþrot, heldur náði nauðasamningum við kröfuhafa. Niðurstaða Héraðsdóms var sú sama.

Úr dómi

Í dómnum kemur fram að ekki er unnt að líta svo á að um nauðsamning stefnda gildi aðrar reglur en um nauðasamninga sem gerðir eru samkvæmt gjaldþrotalaga. "Nauðasamningur sem gerður er eftir að félag hefur verið tekið til gjaldþrota­skipta leiðir til þess að fjárhæð krafna og skilmálar breytast eftir því sem samningurinn mælir fyrir um.  Gjaldþrotaskiptunum er hætt og stjórn félagsins tekur aftur við forræði á hagsmunum þess og skuldbindingum.  Kröfuhafi sem komst ekki að við skiptin vegna þess að hann lýsti ekki kröfu sinni, getur krafist greiðslu kröfu sinnar, en verður að sæta lækkun hennar í samræmi við skilmála nauðasamningsins," segir í dómnum.

Þá kemur fram að sá stefndi, ALMC, skuli greiða stefnanda málskostnað, að fjárhæð 1.600.000 krónur.