Fjármálaeftirlitið hefur farið yfir eignir og fjárfestingar Almenna lífeyrissjóðsins á árinu 2008.

Við þá skoðun kom ekkert óeðlilegt í ljós og sjóðurinn hefur fjárfest í takt við fjárfestingarstefnu og heimildir í lögum.

Þetta kemur fram á vef sjóðsins og er birt vegna frétta um rannsóknir á fjárfestingum lífeyrissjóða.

Sjá nánar á vef sjóðsins.