Almenni lífeyrissjóðurinn er besti lífeyrissjóður landsins, að því er fram kemur í tímaritinu World Finance . Lífeyrissjóðurinn Almenni var einn fjögurra íslenskra lífeyrissjóða sem voru tilnefndir til verðlaunanna og einn 24 um allan heim sem hljóta verðlaunin. Í umfjöllun tímaritsins um lífeyrissjóðinn segir að með hækkandi meðalaldri og auknum sveiflum á mörkuðum undanfarin ár hafi landslag lífeyrissjóða breyst. Áhættudreifing skipti nú meira máli en nokkru sinni fyrr.

Verðlaunin eru veitt þeim lífeyrissjóði á hverju svæði sem veitir bestu þjónustuna og nýtir best þau tækifæri sem fyrir hendi eru.

World Finance er alþjóðlegt tímarit um fjármál sem kemur út annan hvorn mánuð. Blaðið er með  höfuðstöðvar í London en árlega veitir tímaritið verðlaun þeim fyrirtækjum sem þykja skara framúr á ýmsum sviðum fjármálaþjónustu.