Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Alor ehf. Fyrirtækið var stofnað á síðasta ári og vinnur að því að þróa og framleiða umhverfisvænar raforkugeymslur úr áli sem nýttar verða til þess að safna og geyma umfram framleidda raforku og stuðla að betri nýtingu hennar.

Hagnýtingarmöguleikar raforkugeymslna úr áli eru fjölmargir og má þar nefna; að stuðla að samdrætti losunar koltvísýrings í sjávarútvegi, landbúnaði og iðnaði auk þess að tryggja raforku á afskekktum svæðum og á hamfarasvæðum.

„Framundan hjá Alor eru spennandi tímar við uppbyggingu félagsins. Það er mikill fengur að hafa fengið Ragnheiði Elínu til liðs við okkur enda býr hún yfir dýrmætri reynslu og þekkingu sem mun nýtast vel í verkefnum félagsins“,  segir Valgeir Þorvaldsson stjórnarformaður og einn stofnenda Alor.

Fyrirtækið er nú þegar í samstarfi við Háskóla Íslands og Albufera Energy Storage á Spáni sem er leiðandi í þróun á álrafhlöðum í Evrópu. Þessu til viðbótar er unnið að samstarfssamningum við fleiri aðila bæði hér á landi og erlendis.

Ragnheiður Elín telur framtíðarmöguleikana mikla og hlakkar til að takast á við þau verkefni sem bíða hennar.

„Það er brýnna en nokkru sinni fyrr að finna lausnir til þess að draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda og þannig stuðla að því að markmið Parísarsamkomulagsins náist, sem og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna,“ segir Ragnheiður Elín.

„Ísland hefur tækifæri til þess að verða leiðandi í baráttunni við loftslagsvandann og skapa sér enn frekari sérstöðu á þessu sviði. Með nýjum lausnum má m.a. hraða brýnum orkuskiptum skipaflotans og rafvæðingu hafna. Alor ehf. gegnir þarna lykilhlutverki og er ég full eftirvæntingar að leiða félagið.“