Bandaríska lyfjafyrirtækið Alpharma er skuldlaust eftir að Actavis keypti samheitalyfjaeiningu félagsins fyrir 810 milljónir Bandaríkjadala fyrr á árinu.
Ágóðinn af sölunni hefur verið nýttur til að kaupa upp útistandandi skuldabréf, en félagið mun þó eiga eftir um 200 milljónir dala eftir uppgreiðslu skulda.
Actavis keypti einnig bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Amide fyrr á árinu fyrir 500 milljónir dala, en kaupverðið gæti hækkað í 600 milljónir dala ef afkoma Amide stenst væntingar.
Félagið vinnur nú að samþættingu og samruna Amide og samheitalyfjaeiningu Alpharma við Actavis.